-
85
MWe
Uppsett afl
-
710
GWe
Ársframleiðsla raforku
-
190
MWth
Heita vatns framleiðsla
Stækkun Svartsengisvirkjunar
Í árslok 2022 hóf HS Orka framkvæmdir við nýtt orkuver í Svartsengi (SVA7). Í framkvæmdinni felst að eldri framleiðslueiningar í orkuveri 3 og 4 verða teknar úr notkun og ný framleiðslueining með 55MW uppsettu afli byggð í staðinn. Með þessari framkvæmd verður orkuverið í Svartsengi rekið á þremur vélum (orkuver 5,6 og 7) og verður heildarframleiðslugetan allt að 85MW.
Í dag telst uppsett afl í Svartsengi um 66MW og er því um þriðjungsstækkun á orkuverinu að ræða. Kostnaðaráætlun verkefnisins nemur í heild um 12 milljörðum króna og má ætla að um 150 manns komi að verkinu þegar mest verður. Áætluð verklok eru í desember 2025.