Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 09-16

  • 50

    MWe

    Uppsett afl

  • 420

    GWh

    Ársframleiðsla raforku

  • 100

    MWth

    Heita vatns framleiðsla

Canyon

Saga jarðhitarannsókna í Krýsuvík nær aftur um rúmlega 70 ár og hafa komið fram margvíslegar hugmyndir um nýtingu svæðisins. Nokkur fjöldi rannsóknarborholna hafa verið boraðar á svæðinu í tengslum við þessar rannsóknir, en að auki hafa farið fram ýtarlegar yfirborðsrannsóknir. Nokkuð vandasamt hefur reynst að staðsetja aðaluppstreymissvæði jarðhitakerfisins. Í dag er svæðinu skipt upp í 4 undirsvæði, sbr. skilgreiningu rammaáætlunar númer 2 og 3, þ.e. Sandfell, Trölladyngja, Sveifluháls og Austurengjar. Trölladyngja er flokkuð í biðflokk á meðan hin undirsvæðin eru í nýtingarflokki.


HS Orka er með rannsóknarleyfi í gildi á svæðinu öllu þar sem tilgangur rannsókna og fyrirhugaðrar nýtingar HS Orku á Krýsuvíkursvæðinu er að mæta sívaxandi eftirspurn eftir heitu vatni og rafmagni. Framleiðsla á heitu vatni á svæði sem er staðsett milli Svartsengis og Hellisheiði myndi ekki bara mæta aukinni þörf heldur einnig auka möguleika á að tryggja betur afhendingaröryggi t.d. með samtengingu kerfa þá bæði fyrir sveitarfélögin á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu.  


HS Orka fyrirhugar að bora næstu rannsóknarholu í Sveifluhálsi í Krýsuvík á árinu 2024.