HS Orka og Sæbýli undirrita viljayfirlýsingu um sæeyrnaeldi (e. Abalone) í Auðlindagarði HS Orku - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka og Sæbýli undirrita viljayfirlýsingu um sæeyrnaeldi (e. Abalone) í Auðlindagarði HS Orku

Sæbýli X HSO

HS Orka og Sæbýli rekstur ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um sæeyrnaeldi í Auðlindagarði HS Orku.

Sæbýli hefur á þessu ári verið að byggja upp ungviðaeldisstöð í Grindavík sem byggir hlýsjávareldi sitt á jarðvarma og grænni orku frá virkjun HS Orku við Svartsengi.

Sæbýli er eldisfyrirtæki sem hefur á síðastliðnum 15 árum þróað eigin klakstofn, tækni og framleiðsluaðferð við eldi á sæeyrum á Íslandi. Uppsetning eldisins er einstök á heimsvísu og sú fyrsta sinnar tegundar en hún byggir á lóðréttu hillukerfi og vatnsendurnýtingu. Sæeyru sem á ensku kallast „abalone“ eru í raun sæsniglar og eru ein verðmætasta eldistegund í heimi sem með nýtingu einstakra auðlinda á Íslandi er mögulegt að rækta með hlýsjávareldi hér á landi.

Fyrirtækið hefur undanfarið rekið klakstöð í Grindavík til að rækta upp ungviði en hyggst byggja upp áframeldi í Auðlindagarðinum þar sem það hyggst nýta græna raforku og varma á Reykjanesi. Áform Sæbýlis eru í fyrstu að byggja upp 200 tonna eldi sem svo er mögulegt að fimmfalda á næstu 10 árum. Sæeyrnastofninn sem ræktaður er má rekja til Japans en í Asíu er þessi skelfiskur eftirsótt matvæli og hefur Sæbýli í hyggju að flytja vöruna á erlenda markaði.

Sigurður Pétursson, stjórnarformaður Sæbýlis:

„Einstakar náttúruauðlindir á Íslandi með jarðvarma, hreinum borholusjó og grænni raforku gerir Sæbýli í samvinnu við HS Orku mögulegt að þróa umhverfisvænt skelræktarverkefni. Bæði félögin leggja áherslu á umhverfisvænt hringrásarkerfi og erum við því mjög ánægð hjá Sæbýli að ná þessum áfanga í uppbyggingu félagsins.“

Ásgeir Guðnason, stofnandi og framkvæmdastjóri Sæbýlis:

„Ýmsir velta fyrir sér hvort það taki mörg ár að hefja eldi á nýrri eldistegund og einfalda svarið er „Já!“ Grunnurinn snýr að byggja upp klakstofn og við höfum náð þeim áfanga og lögðum því í það verkefni á árinu að byggja ungviðaeldisstöð í Grindavík. Þessi viljayfirlýsing með HS Orku tekur okkur fleiri skref áfram í því markmiði að byggja upp einstakt eldi á verðmætustu eldistegund í heimi hér á Íslandi.“

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku:

„Við erum afar spennt fyrir þessu samstarfi við Sæbýli. Þeir búa yfir mikilli þekkingu og reynslu við uppbyggingu á eldisrekstri og við teljum þetta verkefni vera góða viðbót við þá flóru eldisfyrirtækja sem eru að byggjast upp í Auðlindagarðinum. Framleiðsla á sæeyrum fellur vel að hugmyndafræði Auðlindagarðsins, nýtir bæði grænt rafmagn og varma við framleiðsluna. En ekki síst lítum við jákvæðum augum á þá möguleika sem sæeyrnaeldið opnar á fyrir möguleg frekari samlegðaráhrif eldisfyrirtækja á svæðinu“

Um HS Orku

HS Orka hefur verið leiðandi í framleiðslu á endurnýjanlegri orku í yfir 45 ár. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur hópur sérfræðinga með mikla reynslu á sínu sviði. HS Orka á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Orkuverið Svartsengi og Reykjanesvirkjun auk vatnsaflsvirkjunar á Brú í Tungufljóti. Nýsköpun og frjó hugsun hefur ætíð verið grunnurinn í starfsemi fyrirtækisins og er grunnurinn að Auðlindagarðinum, þar sem lögð er áhersla á að allir auðlindastraumar séu nýttir. Í dag starfa í Auðlindagarðinum 11 fjölbreytt fyrirtæki sem öll nota einhverja auðlindastrauma í beinni tengingu frá orkuverum HS Orku.

Um Sæbýli

Sæbýli var stofnað árið 2007 og hefur frá stofnun lagt áherslu á uppbyggingu verðmætra eldisstofna sæeyrna frá Japan og Kaliforníu. Samhliða því hefur verið unnið að rannsóknum sem tengist nýtingu á íslenskum sjávarþörungum sem fóður og nýtingu jarðvarma til upphitunar á sjó ásamt því að þróa eigið eldiskerfi, SustainCycle. Í lagareldi eru sífelldar tækniframfarir og þá sérstaklega í landeldi undanfarin ár sem við höfum verið að aðlaga okkar einstæða eldi sem byggir á hillukerfi sem líkara er grænmetisræktun en hefðbundnu dýraeldi. Á þessu ári (2022) hefur verið farið í umtalsverðar fjárfestingar og uppbyggingu á ungviðaeldisstöð okkar í Grindavík sem er grunnur undir frekari uppbyggingu þar sem og á Reykjanesi.

 

Fréttir

Skoða allar fréttir
Allt eðlilegt í rekstri orkuversins í Svartsengi Svartsengi Súmm

16.07.2025

Allt eðlilegt í rekstri orkuversins í Svartsengi

Lesa nánar
Mælingar við Sveifluháls lofa góðu eftir fyrstu borun KR10 Rannsóknarborun Lokið Skýringarmynd

11.07.2025

Mælingar við Sveifluháls lofa góðu eftir fyrstu borun

Lesa nánar
HS Orka endurgreiðir innmötunargjald til viðskiptavina sinna 5O5a4360

27.06.2025

HS Orka endurgreiðir innmötunargjald til viðskiptavina sinna

Lesa nánar
Rafmagn á 0 krónur að næturlagi 5O5A5904 VEF

18.06.2025

Rafmagn á 0 krónur að næturlagi

Lesa nánar
Samfélagssjóður HS Orku styrkir fjölbreytt verkefni IMG 0443

02.06.2025

Samfélagssjóður HS Orku styrkir fjölbreytt verkefni

Lesa nánar
Plokkuðu heilt tonn af rusli IMG 0580

30.05.2025

Plokkuðu heilt tonn af rusli

Lesa nánar
Vel mætt á morgunverðarfund – upptaka aðgengileg Tómas 2

16.05.2025

Vel mætt á morgunverðarfund – upptaka aðgengileg

Lesa nánar
Sjálfbærnisskýrsla HS Orku 2024 komin út Dji 0781 Vef

12.05.2025

Sjálfbærnisskýrsla HS Orku 2024 komin út

Lesa nánar
Sæbýli kemur með sæeyru í Auðlindagarð HS Orku Mynd F. Frett 060525

06.05.2025

Sæbýli kemur með sæeyru í Auðlindagarð HS Orku

Lesa nánar