HS Orka og e1 í samstarf um hleðslulausnir - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka og e1 í samstarf um hleðslulausnir

Eeinn Og HS Orka
Jóhann Snorri Sigurbergsson ásamt Hafrúnu Þorvaldstóttur, framkvæmdastjóra e1.

HS Orka og íslenska sprotafyrirtækið e1 hafa tekið upp samtarf um hleðslulausnir e1 sem gera viðskiptavinum HS Orku kleift að nota hleðslustöðvar fyrirtækisins með e1 appinu.

HS Orka hóf innreið sína á hleðslustöðvamarkaðinn fyrir réttu ári.  Megináhersla fyrirtækisins hefur verið á hleðslulausnir sem henta fyrirtækjum og einstaklingum auk þess sem settar hafa verið upp almennar hleðslustöðvar, t.d. í Kringlunni og við Hótel Geysi í Haukadal, og mun slíkum stöðvum fjölga á næstunni.

„Lausnum okkar á hleðslustöðvamarkaðnum hefur verið mjög vel tekið og sú einfalda og hagkvæma nálgun sem við höfum beitt hugnast fyrirtækjum sérstaklega vel. Þá hafa einstaklingar og fjölbýlishús einnig tekið mjög vel í lausnirnar okkar. Við ýmist leigjum frá okkur stöðvarnar, og sjáum þá um alla þjónustu, eða seljum þær til viðskiptavina okkar“, segir Jóhann Snorri Sigurbergsson, deildarstjóri viðskiptaþróunar hjá HS Orku, en hann er afar ánægður með applausnina e1.

Jóhann segir að nú þegar rafbílavæðingin á Íslandi er á mikilli siglingu hafi fjölmörg fyrirtæki, bæði stór og smá, skráð sig í viðskipti hjá HS Orku: „Rekstrarlausnir okkar eru að mælast mjög vel fyrir og með e1 appinu, sem flestir rafbílaeigendur eru með í símanum sínum, er mjög einfalt að nota stöðvarnar.   Mörg fyrirtækjanna hafa sett upp hleðslustöðvar við starfsemi sína fyrir starfsfólk og viðskiptavini og eftir því sem rafbílum fjölgar mun þörfin bara aukast”.

Hafrún Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri e1, fagnar samstarfinu við HS Orku: „Við erum deilihagkerfi eða svokallað markaðstorg fyrir allar hleðslustöðvar þar sem notendur geta fundið hleðslustöðvar, hlaðið bílinn og greitt fyrir á einfaldan máta. Lausnin okkar er nú þegar í notkun hjá fjölda fyrirtækja og húsfélaga og bjóðum við öllum eigendum hleðslustöðva að tengja þær við e1-appið“. Jóhann bendir jafnfram á að fyrir HS Orku hafi það vegið þungt að skipta við íslenskt fyrirtæki um hugbúnaðarlausnir: „Þegar HS Orka var að velja samstarfsaðila með hugbúnaðarlausnir fyrir hleðslustöðvar sínar lögðum við allt kapp á að styðja við íslenska sprotastarfsemi á borð við e1. Það eru fjölmargar lausnir í boði á á heimsvísu en að vera í samstarfi við íslenskt fyrirtæki, sem býður upp á jafn samkeppnishæfa lausn og e1 gerir, einfaldar lífið fyrir viðskiptavinina okkar. Appið er aðgengilegt í mörgum hleðslustöðvum og það er hagur allra að fækka þeim öppum sem rafbílaeigendur þurfa að ná sér í til að hafa aðgang að hleðslustöðvum víðs vegar um landið.”  

Fréttir

Skoða allar fréttir
Allt eðlilegt í rekstri orkuversins í Svartsengi Svartsengi Súmm

16.07.2025

Allt eðlilegt í rekstri orkuversins í Svartsengi

Lesa nánar
Mælingar við Sveifluháls lofa góðu eftir fyrstu borun KR10 Rannsóknarborun Lokið Skýringarmynd

11.07.2025

Mælingar við Sveifluháls lofa góðu eftir fyrstu borun

Lesa nánar
HS Orka endurgreiðir innmötunargjald til viðskiptavina sinna 5O5a4360

27.06.2025

HS Orka endurgreiðir innmötunargjald til viðskiptavina sinna

Lesa nánar
Rafmagn á 0 krónur að næturlagi 5O5A5904 VEF

18.06.2025

Rafmagn á 0 krónur að næturlagi

Lesa nánar
Samfélagssjóður HS Orku styrkir fjölbreytt verkefni IMG 0443

02.06.2025

Samfélagssjóður HS Orku styrkir fjölbreytt verkefni

Lesa nánar
Plokkuðu heilt tonn af rusli IMG 0580

30.05.2025

Plokkuðu heilt tonn af rusli

Lesa nánar
Vel mætt á morgunverðarfund – upptaka aðgengileg Tómas 2

16.05.2025

Vel mætt á morgunverðarfund – upptaka aðgengileg

Lesa nánar
Sjálfbærnisskýrsla HS Orku 2024 komin út Dji 0781 Vef

12.05.2025

Sjálfbærnisskýrsla HS Orku 2024 komin út

Lesa nánar
Sæbýli kemur með sæeyru í Auðlindagarð HS Orku Mynd F. Frett 060525

06.05.2025

Sæbýli kemur með sæeyru í Auðlindagarð HS Orku

Lesa nánar