HS Orka eykur framleiðslugetu í Svartsengi um 22 MW - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka eykur framleiðslugetu í Svartsengi um 22 MW

HS Orka Skóflustunga

Grindavík, 15. desember 2022 – HS Orka hefur hafið vinnu við stækkun orkuversins í Svartsengi. Í orkuverinu verður ein framleiðslueining sem mun koma í stað nokkurra eldri véla og búnaðar. Með að nýta gufu sem áður fór í eldri vélar eykst framleiðslugetan og viðhalds- og framleiðslukostnaður lækkar. Þá er gert ráð fyrir því að með stækkuninni verði hægt að ná betri nýtingu úr auðlindinni í Svartsengi í framtíðinni.  

Öll tilskilin leyfi hafa fengist fyrir stækkuninni og kom það í hlut Alberts Albertssonar að taka fyrstu skóflustunguna ásamt verktökunum. Albert er hugmyndasmiður Auðlindagarðsins sem hefur það markmið að draga úr sóun og fullnýta allt það sem fellur til við jarðhitavinnslu fyrirtækisins. Þá hefur Albert komið að uppbyggingu allra hluta virkjunarinnar í Svartsengi. Framleiðsluaukningin í Svartsengi er fengin með betri nýtingu á núverandi upptekt úr jarðhitageyminum og því við hæfi að Albert tæki fyrstu skóflustunguna.  

Eftir stækkun mun framleiðslugeta orkuversins í Svartsengi verða 85 MW.  

Fjármögnun tryggð 

HS Orka hefur tryggt 61,9 milljón dollara fjármögnun frá núverandi lánveitendum til verkefnisins. Þá munu hluthafar HS Orku leggja til viðbótarfjármögnun til að styðja við stækkunina. Fjármögnun verkefnisins undirstrikar það traust sem bæði lánastofnanir og hluthafar hafa á fyrirtækinu og þau verkefni sem það vinnur að til að auka framboð raforku á Íslandi til að mæta þörfum markaðarins.  

Tómas Sigurðsson forstjóri HS Orku 

Við erum mjög spennt fyrir því að hefja stækkun á virkjuninni í Svartsengi í beinum framhaldi af því að klára stækkun virkjunarinnar á Reykjanesi. Bæði verkefnin ná vel utan um markmið HS Orku um að nýta sem best þær auðlindir sem okkur er treyst fyrir þar sem við erum að auka raforkuframleiðslu inná raforkukerfið án þess að fara inná ný svæði, sem dregur úr áhættu og kostnaði.  

Um HS Orku 

HS Orka var stofnað 1974 og hefur verið leiðandi í framleiðslu endurnýjanlegrar orku alla tíð. Nýsköpun hefur alltaf verið hluti af kjarna fyrirtækisins sem sést best á Auðlindagarðinum, þar sem áherslan er á að nýta affalsstrauma frá virkjunum sem auðlind. HS Orka á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir á Reykjanesi auk 9,9 MW rennslisvirkjunar í Biskupstungum.  

Fréttir

Skoða allar fréttir
Allt eðlilegt í rekstri orkuversins í Svartsengi Svartsengi Súmm

16.07.2025

Allt eðlilegt í rekstri orkuversins í Svartsengi

Lesa nánar
Mælingar við Sveifluháls lofa góðu eftir fyrstu borun KR10 Rannsóknarborun Lokið Skýringarmynd

11.07.2025

Mælingar við Sveifluháls lofa góðu eftir fyrstu borun

Lesa nánar
HS Orka endurgreiðir innmötunargjald til viðskiptavina sinna 5O5a4360

27.06.2025

HS Orka endurgreiðir innmötunargjald til viðskiptavina sinna

Lesa nánar
Rafmagn á 0 krónur að næturlagi 5O5A5904 VEF

18.06.2025

Rafmagn á 0 krónur að næturlagi

Lesa nánar
Samfélagssjóður HS Orku styrkir fjölbreytt verkefni IMG 0443

02.06.2025

Samfélagssjóður HS Orku styrkir fjölbreytt verkefni

Lesa nánar
Plokkuðu heilt tonn af rusli IMG 0580

30.05.2025

Plokkuðu heilt tonn af rusli

Lesa nánar
Vel mætt á morgunverðarfund – upptaka aðgengileg Tómas 2

16.05.2025

Vel mætt á morgunverðarfund – upptaka aðgengileg

Lesa nánar
Sjálfbærnisskýrsla HS Orku 2024 komin út Dji 0781 Vef

12.05.2025

Sjálfbærnisskýrsla HS Orku 2024 komin út

Lesa nánar
Sæbýli kemur með sæeyru í Auðlindagarð HS Orku Mynd F. Frett 060525

06.05.2025

Sæbýli kemur með sæeyru í Auðlindagarð HS Orku

Lesa nánar