Birna nýr upplýsingafulltrúi HS Orku - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Birna nýr upplýsingafulltrúi HS Orku

D7fd1f866119ad5b21da1009567e60b262a48613

Birna Lárusdóttir, fjölmiðlafræðingur, hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi HS Orku. Hún á að baki langan feril í ritstjórn, þýðingum, fréttamennsku og upplýsingagjöf og var m.a. upplýsingafulltrúi Vesturverks á Ísafirði, dótturfyrirtækis HS Orku. Einnig starfaði hún um árabil að sveitarstjórnarmálum.

„HS Orka er virkilega dýnamískur vinnustaður, ekki síst nú á tímum orkuskipta. Fyrirtækið er í fararbroddi í sjálfbærri auðlindanýtingu og mörg spennandi verkefni eru í farvatninu sem ég hlakka til að fá taka þátt í með afar öflugum hópi samstarfsfólks,” segir Birna.

„Við fögnum því að fá Birnu til liðs við okkur“, segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, „Þekking hennar og reynsla mun nýtast okkur vel í þeim verkefnum sem við erum að fást við í dag og þeim vexti sem er framundan hjá fyrirtækinu.“

Birna er með B.A. gráðu í fjölmiðlafræði frá University of Washington og M.A. gráðu í hagnýtri ritstjórn og útgáfu frá Háskóla Íslands. Hún er Reykvíkingur að uppruna, bjó lengst af á Ísafirði en er nú búsett í Hafnarfirði. Sambýlismaður hennar er Hallgrímur Kjartansson, heimilislæknir, og eiga þau fjögur börn.

HS Orka er þriðji stærsti orkuframleiðandi landsins en fyrirtækið á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Svartsengi og Reykjanesvirkjun, ásamt vatnsaflsvirkjuninni Brúarvirkjun í Biskupstungum.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Allt eðlilegt í rekstri orkuversins í Svartsengi Svartsengi Súmm

16.07.2025

Allt eðlilegt í rekstri orkuversins í Svartsengi

Lesa nánar
Mælingar við Sveifluháls lofa góðu eftir fyrstu borun KR10 Rannsóknarborun Lokið Skýringarmynd

11.07.2025

Mælingar við Sveifluháls lofa góðu eftir fyrstu borun

Lesa nánar
HS Orka endurgreiðir innmötunargjald til viðskiptavina sinna 5O5a4360

27.06.2025

HS Orka endurgreiðir innmötunargjald til viðskiptavina sinna

Lesa nánar
Rafmagn á 0 krónur að næturlagi 5O5A5904 VEF

18.06.2025

Rafmagn á 0 krónur að næturlagi

Lesa nánar
Samfélagssjóður HS Orku styrkir fjölbreytt verkefni IMG 0443

02.06.2025

Samfélagssjóður HS Orku styrkir fjölbreytt verkefni

Lesa nánar
Plokkuðu heilt tonn af rusli IMG 0580

30.05.2025

Plokkuðu heilt tonn af rusli

Lesa nánar
Vel mætt á morgunverðarfund – upptaka aðgengileg Tómas 2

16.05.2025

Vel mætt á morgunverðarfund – upptaka aðgengileg

Lesa nánar
Sjálfbærnisskýrsla HS Orku 2024 komin út Dji 0781 Vef

12.05.2025

Sjálfbærnisskýrsla HS Orku 2024 komin út

Lesa nánar
Sæbýli kemur með sæeyru í Auðlindagarð HS Orku Mynd F. Frett 060525

06.05.2025

Sæbýli kemur með sæeyru í Auðlindagarð HS Orku

Lesa nánar