Algengar spurningar
-
Hleðsluáskrift
-
Rafmagn
-
HS Orka býður uppá leigu á hleðslustöð frá 3.490 kr. á mánuði, hvort sem það er fyrir sérbýli, fjölbýli eða fyrirtæki.
-
Þú skráir þig í gegnum skráningarsíðu HS Orku og í kjölfarið höfum við samband við þig og veitum þér frekari upplýsingar.
-
Jarðvegsvinna og grunnnet þarf að vera tilbúið áður en Hleðsluáskrift er hafin og mismunandi aðstæður gera það að verkum að erfitt er að áætla verð.
-
Þjónustugjald er mánaðarlegt gjald fyrir hugbúnaðar- og sjálfstýringarþjónustu á hvern hleðsluútgang á hleðslustöð. Fyrirtæki, stofnanir og fjölbýli (húsfélög) greiða þjónustugjald, en þau innifela m.a. aðgang að netskjáborði til yfirlits og greiningar, gagnasöfnun og sjálfvirkni á álagsdreifingu og greiðslumiðlun.
-
Uppsetning á grunnneti, en það þarf að vera tilbúið áður en Hleðsluáskrift hefst. Hægt er að fá þjónustuaðila á vegum HS Orku á staðinn og fá tilboð vegna uppsetningar. Verð á uppsetningu er mismunandi eftir aðstæðum og greitt er sérstaklega til þjónustuaðila.
-
Viðskiptavinir þurfa aldrei að hafa áhyggjur af hleðslu rafbílsins. Í stað þess að fjárfesta í kostnaðarsamri hleðslustöð þá borga viðskiptavinir aðeins lágt mánaðargjald og fær aðgang að nútímalegri hleðslustöð heim til sín. Með áskriftinni fylgir alltaf hleðslustöð sem er búin nýjustu tækni og uppfyllir ströngustu öryggiskröfur.