-
9,8
MW
Uppsett afl
-
82
GWh
Ársframleiðsla
Uppsett afl Fjarðarárvirkjana í Seyðisfirði er samtals 9.8 MW. Tvær virkjanir eru í Fjarðará og heita þær Bjólfsvirkjun og Gúlsvirkjun. Góð miðlunarlón eru í Heiðarvatni og Þverárlóni á Fjarðarheiði og miðlun úr þeim gerir HS Orku kleift að nýta framleiðslu virkjananna til að mæta álagstoppum almennra notenda að vetrarlagi. Framleiðsla virkjananna er fyrst og fremst hugsuð sem liður í orkusölu til almennra notenda.