Öryggisstefna
Það er stefna HS Orku að:
- Fyrirbyggja að óhöpp, slys eða hættutilvik eigi sér stað.
- Tryggja skilvirkt skipulag og markvissa stjórnun.
- Vinna stöðugt að umbótum á sviði öryggis-, heilbrigðis- og vinnuverndarmála.
- Tryggja að starfsmenn hafi hlotið viðeigandi þjálfun í öryggis-, heilbrigðis- og vinnuverndarmálum.
- Vinna í fullu samræmi við lög, reglugerðir og aðrar kröfur sem og vottað verklag.
Umhverfisstefna
Það er stefna HS Orku að:
- Fyrirbyggja að hættutilvik, óhöpp eða slys á umhverfi eigi sér stað.
- Tryggja skilvirkt skipulag og markvissa stjórnun.
- Vinna stöðugt að umbótum á sviði umhverfismála.
- Veita öllum starfsmönnum, verktökum og gestum viðhlítandi fræðslu um umhverfismál.
- Draga úr úrgangi frá fyrirtækinu, endurnýta hráefni og flokka úrgang til endurvinnslu eins og unnt er.
- Nota efni sem hægt er að endurnýta og endurvinna, sem er slitsterkt og endingargott og velja umhverfisvottaðar vörur og þjónustu eins og kostur er.
- Draga úr notkun eiturefna og hættulegra efna og að ekki skapist hætta af völdum notkunar slíkra efna.
- Starfa sem mest í sátt við lífríki og náttúru, halda umhverfisröskun í lágmarki og vinna að endurheimt gróðurs á svæðum sem óhjákvæmilega hafa raskast við framkvæmdir.
- Lágmarka losun gróðurhúsalofttegunda.
- Draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.
- Draga úr eiginnotkun orkuvera.
- Verða kolefnishlutlaust fyrirtæki.
- Nýta alla þá auðlindastrauma sem streyma inn og frá HS Orku og þeim fyrirtækjum sem nýta auðlindastraumana til fullnustu og á sem ábyrgastan hátt.
- Vinna í fullu samræmi við lög, reglugerðir og aðrar kröfur sem og vottað verklag.
Heilsustefna
Það er stefna HS Orku að:
- Hvetja starfsmenn til að stunda heilsurækt af ýmsu tagi og veita þeim fjárhagslegan stuðning til að auðvelda ástundun.
- Stjórnendur og starfsmenn bera sameiginlega ábyrgð á því að vinnuaðstaða og aðbúnaður starfsfólks sé í lagi.
- Bjóða starfsmönnum upp á árlega heilsufarsskoðun.
- Bjóða upp á næringarríkan mat í mötuneyti starfsmanna.
- Vinna í fullu samræmi við lög, reglugerðir og aðrar kröfur sem og vottað verklag.