Fyrirbyggja að óhöpp, slys eða hættutilvik eigi sér stað.
Tryggja skilvirkt skipulag og markvissa stjórnun.
Vinna stöðugt að umbótum á sviði öryggis-, heilbrigðis- og vinnuverndarmála.
Tryggja að starfsmenn hafi hlotið viðeigandi þjálfun í öryggis-, heilbrigðis- og vinnuverndarmálum.
Vinna í fullu samræmi við lög, reglugerðir og aðrar kröfur sem og vottað verklag.
Umhverfisstefna
Það er stefna HS Orku að:
Fyrirbyggja að hættutilvik, óhöpp eða slys á umhverfi eigi sér stað.
Tryggja skilvirkt skipulag og markvissa stjórnun.
Vinna stöðugt að umbótum á sviði umhverfismála.
Veita öllum starfsmönnum, verktökum og gestum viðhlítandi fræðslu um umhverfismál.
Draga úr úrgangi frá fyrirtækinu, endurnýta hráefni og flokka úrgang til endurvinnslu eins og unnt er.
Nota efni sem hægt er að endurnýta og endurvinna, sem er slitsterkt og endingargott og velja umhverfisvottaðar vörur og þjónustu eins og kostur er.
Draga úr notkun eiturefna og hættulegra efna og að ekki skapist hætta af völdum notkunar slíkra efna.
Starfa sem mest í sátt við lífríki og náttúru, halda umhverfisröskun í lágmarki og vinna að endurheimt gróðurs á svæðum sem óhjákvæmilega hafa raskast við framkvæmdir.
Lágmarka losun gróðurhúsalofttegunda.
Draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.
Draga úr eiginnotkun orkuvera.
Verða kolefnishlutlaust fyrirtæki.
Nýta alla þá auðlindastrauma sem streyma inn og frá HS Orku og þeim fyrirtækjum sem nýta auðlindastraumana til fullnustu og á sem ábyrgastan hátt.
Vinna í fullu samræmi við lög, reglugerðir og aðrar kröfur sem og vottað verklag.
Heilsustefna
Það er stefna HS Orku að:
Hvetja starfsmenn til að stunda heilsurækt af ýmsu tagi og veita þeim fjárhagslegan stuðning til að auðvelda ástundun.
Stjórnendur og starfsmenn bera sameiginlega ábyrgð á því að vinnuaðstaða og aðbúnaður starfsfólks sé í lagi.
Bjóða starfsmönnum upp á árlega heilsufarsskoðun.
Bjóða upp á næringarríkan mat í mötuneyti starfsmanna.
Vinna í fullu samræmi við lög, reglugerðir og aðrar kröfur sem og vottað verklag.