Fara á efnissvæði

Fyrirtækin í Auðlindagarðinum

Auðlindagarðurinn sem byggst hefur upp í grennd við jarðvarmaver HS Orku á Suðurnesjum er einstakur á heimsvísu, boðar nýja tíma, nýja hugsun og hvetur til enn frekari þróunar á aukinni og bættri nýtingu á því sem frá jarðvarmaverum kemur.

Hsorka2013 22 1

HS Orka

Hlutverk HS Orku er að þjóna atvinnulífi og heimilum með fjölnýtingu auðlinda á sjálfbæran hátt til virkjunar og sölu á vistvænni orku og öðrum afurðum til ávinnings fyrir viðskiptavininn og samfélagið.
Image 8

HS Veitur

Fyrirtækið annast dreifingu rafmagns, heits vatns og grunnvatns og starfar á fjórum svæðum; Suðurnesjum, Hafnafirði, Árborg og í Vestmannaeyjum. Félagið veitir því mikilvæga grunnþjónustu á stórum hluta suðvesturhornsins og á Suðurlandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 96 manns. 
Hsorka2013 22 7

Northern Light Inn

Northern Light Inn er gott dæmi um fyrirtæki í ferðaþjónustu sem nýtir ekki eingöngu auðlindastrauma frá jarðvarmaveri HS Orku heldur einnig þá auðlind sem náttúran er.
Image 11

Bláa Lónið Heilsulind

Bláa Lónið er einstakt dæmi um fjölnýtingu og sjálfbæra nýtingu jarðvarmans, og jafnframt gott dæmi um það hvernig vinna má með náttúruauðlindir til verðmætasköpunar. 
Hsorka2013 22 10

Stolt Sea Farm Iceland

Fiskeldisfyrirtækið Stolt Sea Farm Iceland, sem stofnað var árið 2012, á og rekur hátæknifiskeldi á Reykjanesi skammt frá jarðvarmaveri HS Orku.
Blaa Lonid Laekningalind.2E16d0ba 1

Bláa Lónið Lækningalind

Bláa Lónið leitast við að haga framleiðsluháttum húðvaranna á sjálfbæran og umhverfisvænan hátt. Þar má nefna að Bláa Lónið notast eingöngu við hráefni úr nærumhverfi sínu og hefur einnig þróað grænar vinnsluaðferðir á hráefnum sínum.
Hsorka2013 22 6

Haustak og Laugafiskur

Haustak og Laugafiskur eru staðsett í grennd jarðvarmavers HS Orku á Reykjanesi. Fyrirtækin á sinn stóra þátt í fullnýtingu sjávarfangs sem Íslendingar eru þekktir fyrir bæði innanlands og utan.
Hsorka2013 22 9

Carbon Recycling Int.

Verksmiðja Carbon Recycling Int., sem nýtir ólíka auðlindastrauma jarðvarmavirkjunarinnar í Svartsengi, er sú eina sinnar tegundar í heiminum sem nýtir koltvísýring til framleiðslu á endurnýjanlegu metanóli á iðnaðarskala.
Hsorka2013 22 8

ORF Líftækni

Fyrirtækið framleiðir og selur vaxtarþætti fyrir læknisfræðirannsóknir og húðvörur og byggir framleiðslan á einstakri erfðatækni sem gerir kleift að framleiða vaxtaþætti og önnur prótein í byggi.
Blaalonid Trounarsetur Heade.2E16d0ba 1

Bláa Lónið Þróunarsetur

Bláa Lónið er leiðandi hér á landi í ræktun smáþörunga, en fyrirtækið hefur ræktað þörunga í 20 ár. Árið 2012 var mikilvægt skref stigið þegar Bláa Lónið hóf að nýta CO2-ríkt jarðvarmagas frá jarðvarmaveri HS Orku við ræktun þörunga.